is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Viðskipta- og raunvísindasvið > B.S. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/1127

Titill: 
  • Kynningarmál ferðaþjónustufyrirtækja í Eyjafirði : menning og ímynd
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Markmiðið með þessu verkefni er að kanna hvernig ferðaþjónustufyrirtæki
    Eyjafjarðarsvæðinu eru að koma sér á framfæri og hvort þau eru að kynna
    menningu og ímynd svæðisins. Þar sem ferðaþjónustufyrirtæki í Eyjafirði
    eru jafn misjöfn eins og þau eru mörg þá var búist við því að misjafnlega
    væri að kynningarmálum staðið. Farið var í ítarlega greiningu á svæðinu í
    heild svo sem SVÓT – greiningu og einnig var farið í að skoða fyrirtæki í
    ferðaþjónustu. Aflað var heimilda og mat lagt á efnið og komist var að
    eftirfarandi niðurstöðu:
    Kynningarmál eru mjög misjöfn, það fer eftir stærð og umfangi fyrirtækis
    hversu mikið er lagt í markaðsstarfið. Eftir því sem fyrirtækin eru smærri er
    minna lagt í kynningarmál og sum þeirra láta jafnvel nægja að nota bækling
    og smáauglýsingu í símaskránni. Aftur á móti eru stærri fyrirtæki að gera
    meira í markaðssetningu hjá sér og taka sig jafnvel nokkur saman til að ná
    til stærri markhóps. Stærri fyrirtæki eru með fastmótaðri kynningaráætlun
    en þau minni.
    Að mati forsvarsmanna þeirra fyrirtækja sem talað var við, kom sterklega í
    ljós munur á stærri og minni fyrirtækjum í sambandi við hvort auglýsingar
    skili árangri. Stærri fyrirtæki sem leggja meira í auglýsingar og
    kynningarmál telja að auglýsingar skili þeim árangri sem leitað er eftir en
    smærri fyrirtækin telja að auglýsingar skili litlum eða engum árangri það sé
    nóg að vera í einhverjum bæklingum og í símaskránni. Milli stærðin vildi
    meina að halda úti góðri heimasíðu væri það sem skilaði mestum árangri.
    Fyrirtæki eru ekki að koma menningu og ímynd svæðisins á framfæri nema
    það tengist beint þeirra rekstri, þó er undantekning þegar fyrirtæki taka sig
    saman í kynningarmálum þá er vísir að því að menningu og ímynd séu gerð
    skil.
    Lykilorð:

    Eyjafjörður.

    Ferðaþjónusta.

    Kynningarmál.

    Menning.

    Ímynd.

Athugasemdir: 
  • Verkefnið er opið nemendum og starfsfólki Háskólans á Akureyri
Samþykkt: 
  • 1.1.2004
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/1127


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
kynningeyjafj.pdf502.36 kBTakmarkaðurKynningarmál ferðaþjónustufyrirtækja í Eyjafirði - heildPDF
kynningeyjafj_h.pdf145.89 kBOpinnKynningarmál ferðaþjónustufyrirtækja í Eyjafirði - heimildaskráPDFSkoða/Opna
kynningeyjafj_u.pdf114.14 kBOpinnKynningarmál ferðaþjónustufyrirtækja í Eyjafirði - útdrátturPDFSkoða/Opna
kynningeyjafj_e.pdf112.04 kBOpinnKynningarmál ferðaþjónustufyrirtækja í Eyjafirði - efnisyfirlitPDFSkoða/Opna