Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/11291
Skoðaðar verða niðurstöður spurningalistakönnunar fyrir ungmenni í 9. og 10. bekk árið 1997 og 2006. Svarhlutfallið var 91% árið 1997 en 80,1% árið 2006. Notast var við 1157 manna úrtak úr listanum árið 1997, en alls svöruðu 3872 B listanum sem notast var við i þessari könnun. En árið 1997 var A og B listi, en alls svöruðu 7785 nemendur báðum listum. Fyrir árið 2006 þá var aðeins einn listi og honum svöruðu 7430 nemendur. Notast var við 1000 manna úrtak árið 2006, en mun á svarhlutfalli má rekja til þess að sumir skólar úti á landi vildu ekki taka þátt.
Ofbeldi og afbrot hér á landi hafa áður verið skoðuð, en þessi rannsókn gengur út á að sjá hvort samband sé á milli þessarar frávikshegðunar og notkunar miðla ásamt öðrumfélagslegra þáttum. Einstaka sinnum kemur fram í fjölmiðlum að t.d. hryðjuverkamaður hafi horft mikið á ofbeldisfullar kvikmyndir eða spilað ofbeldisfulla tölvuleiki. Leitast er eftir að sjá hvort notkun miðla hefur svo sterk áhrif á hegðunina eða hvort aðrir félagslegir þættir hafa þessi áhrif.
Marktækar niðurstöður sýna að notkun miðla árið 1997 hafi haft áhrif á ofbeldishegðun ungmenna. Því meiri notkun, því meiri líkur á að einstaklingur hafi beitt ofbeldi s.l. 12 mánuði. Ekki fundust marktækar niðurstöður þegar athuguð voru áhrif af notkun miðla á ofbeldishegðun árið 2006 né áhrif af notkun miðla á afbrotahegðun árið 1997 og 2006. Aðrir félagslegir þættir voru hinsvegar marktækir og hafa meiri áhrif á hvort að einstaklingur hafi beitt ofbeldi eða framið afbrot s.l. 12 mánuði.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Jón_Atli_Hermannsson_BA.pdf | 1.49 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |