is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Viðskipta- og raunvísindasvið > B.S. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/1130

Titill: 
  • Starfsmannaráðningar og virkjun mannauðs í leit að þekkingu og færni
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Vegna aukinnar samkeppni á vinnumarkaði undanfarin ár hefur skapast
    þörf hjá fyrirtækjum fyrir nýjar aðferðir við að auka afköst og bæta árangur
    starfsmanna. Auknar kröfur eru gerðar um að starfsmenn búi yfir ákveðinni
    þekkingu sem getur styrkt fyrirtækið í heild. Vel undirbúið ráðningarferli
    er einn af lykilþáttum til að sú þekking sem fyrirtækið þarfnast komi inn í
    fyrirtækið með nýráðningu starfsmanns.
    Mannauðsstjórnun er hluti af heildarstjórnun fyrirtækja og tryggir meðal
    annars að skipulagt ráðningarferli sé til staðar.
    Þekkingarstjórnun er nýtt hugtak í stjórnun og felst í að auka þekkingu
    starfsfólks ásamt því að virkja og nýta betur þá þekkingu sem er til staðar.
    Til að ferli mannauðsstjórnunar og þekkingarstjórnunar séu möguleg í
    fyrirtæki þurfa fræðilegar forsendur að liggja að baki heildarstefnumótun
    fyrirtækisins.
    Þegar þörf er á að ráða nýjan starfsmann, - er mikilvægt að vinna
    starfagreiningu vel. Stjórnendur standa frammi fyrir því að ákveða hvort
    þeir vilji vinna að ráðningarferlinu innan fyrirtækisins eða fá
    ráðningarskrifstofu til verksins með sérþjálfaða ráðgjafa í ráðningarferli.
    Íverkefninu eru dregin fram meginatriði við skipulagðan undirbúning
    ráðningarferlis í skipulagheildum og gerð sértök grein fyrir
    ráðningarþjónustu Mannafls. Jafnframt er gerð grein fyrir niðurstöðum úr
    samanburðarkönnun á ráðningaraðferðum fyrirtækja með starfsstöðvar
    bæði á Akureyri og í Reykjavík. Í ljós kemur að ekki virðist vera
    umtalsverður munur á ráðningaraðferðum – þó má segja að ráðning
    stjórnenda sé í fastari skorðum en ráðning almennra starfsmanna.
    Rannsóknarspurningar/tilgáta
    1. Hvaða aðferðir nota fyrirtækin við ráðningar?
    2. Hvort munur sé á aðferðum sem fyrirtæki/deildir á Akureyri beita
    samanborið við fyrirtæki/deildir í Reykjavík og ef svo er hver er sá munur?
    v
    3. Tilgátan sem lagt var upp með er sú að fyrirtæki/starfsdeildir á Akureyri
    noti síður ráðningaþjónustu en móðurdeildir í Reykjavík og þá einkum
    vegna smæðar og minna fjármagns til að spila úr.
    Samkvæmt niðurstöðum úr rannsókn eru fyrirtæki/starfsdeildir á Akureyri
    og í Reykjavík að gera nákvæmlega sömu hlutina í sambandi við ráðningar
    ánýju starfsfólki. Fyrirtækin huga vel að ráðningarferlinu þó svo að
    fyrirtæki/starfsdeildir í Reykjavík nýti sér í mun meiri mæli þjónustu
    ráðningarskrifstofna heldur en fyrritæki/starfsdeildir á Akureyri. Því virðist
    tilgáta mín hafa verið hrakin í meginatriðum.
    LYKILORÐ:
    Mannauðsstjórnun,
    Þekkingarstjórnun,
    Starfagreining,
    Ráðningarskrifstofa,
    Ráðningarferli.

Samþykkt: 
  • 1.1.2004
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/1130


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
starfsmannaradning.pdf5.18 MBOpinnStarfsmannaráðningar og virkjun mannauðs í leit að þekkingu og færni - heildPDFSkoða/Opna