is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/11315

Titill: 
  • Stafrænt hagkerfi á Íslandi: Þróun, staða og framtíð
  • Titill er á ensku Digital Economy in Iceland: Development, Status and Future
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Frá því að Íslandi fékk aðgang að Internetinu hefur Internet-tengd þjónusta svo sannarlega blómstrað. Skilvirkni í rekstri fyrirtækja hefur aukist, samskipti Íslands við umheiminn hafa batnað til muna og þróun stafrænna viðskipta og samskipta hefur verið ör. Slík viðskipti og samskipti mótuðust fremur hægt á Íslandi og má þar vafalaust líta til smæðar og legu landsins. Á hinn bóginn höfðu nánast fullmótuð stafræn hagkerfi þróast hratt t.d. í Bandaríkjunum þar sem stafræn viðskipti og samskipti voru orðin stór hluti af daglegu lífi íbúa Bandaríkjanna. Viðfangsefni ritgerðarinnar er að rýna í uppbyggingu og þróun stafræna hagkerfisins á Íslandi. Byrjað er á því að skilgreina hvað stafrænt hagkerfi er, hverjir kostirnir eru við að notast við stafrænt form samskipta og viðskipta og hvaða breytingar fylgja tilfærslunni úr venjulegu hagkerfi yfir í stafrænt. Mikil áhersla er lögð á Ísland og er það gert með því að líta á upphaf netvæðingar á Íslandi og er sagan skoðuð í framhaldi. Staðan í dag er einnig metin þar sem kemur í ljós að Ísland er mjög framarlega þegar kemur að tæknivæðingu í heiminum. Einnig verður litið á tækifærin sem felast í stafrænni væðingu með nýjum markaðssetningarmöguleikum og auknum möguleikum á að koma sér á framfæri. Þar er sérstaklega litið til íslensku hljómsveitarinnar Of Monsters And Men sem hefur náð mjög góðum árangri með hæfileikum sínum og hjálp stafræns hagkerfis. Að lokum er reynt að meta hvernig framtíðin muni líta út á Íslandi í stafrænni þróun með því að líta á hvernig við stöndum á alheimsmarkaði og hvernig tækniþróunin mun verða á næstu árum. Ísland stendur mjög framarlega á því sviði og full ástæða virðist vera til bjartsýni í nánustu framtíð. Helstu gallar varðandi stafrænt hagkerfi á Íslandi eru að mörg fyrirtæki eru ekki komin nægilega vel inn í stafrænan heim og stjórnvöld á Íslandi eru langt á eftir í slíkum málefnum og því þarf að bæta úr.

Samþykkt: 
  • 3.5.2012
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/11315


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
BS-ritgerð - lokaútgáfa.pdf755.47 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna