Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/11324
Þessi ritgerð fjallar um verðmat fyrirtækja og helstu aðferðir sem notaðar eru við verðmat á fyrirtækjum, bæði þeim sem hafa verið tekin til viðskipta á skipulögðum verðbréfamarkaði og þeim sem ekki hafa verið tekin til slíkra viðskipta, þ.e.a.s. óskráðum félögum. Einnig verður farið yfir helstu áhrifaþætti í verðmati og áhrif þeirra útskýrð frekar.
Fjallað verður um ólíkar aðferðir við verðmat á fyrirtækjum, hvaða aðferðir henta best hverju sinni auk þess sem mismunur þessara aðferða verður yfirfarinn og túlkaður. Í kjölfarið verður framkvæmt verðmat á fyrirtækjum sem hafa verið tekin til viðskipta á skipulögðum verðbréfamarkaði. Notast verður við frjálsu sjóðstreymisaðferðina við verðmatið. Síðustu tveir kaflar ritgerðarinnar fjalla um verðmat á IBM og Nasdaq OMX Group. Verðmatið var framkvæmt með frjálsu sjóðstreymisaðferðinni og ítarlega útreikninga er hægt að finna í viðaukum 1 og 2.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Ragnar Einarsson BS.pdf | 737.16 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |