Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/11362
Í þessari ritgerð er fjallað um hvernig pólitísk, efnahagsleg og félagsleg einangrun birtist í samfélagi palestínskra flóttamanna í Líbanon og hvernig þessi einangrun hefur haft áhrif á og skapað sjálfsmynd flóttamannanna. Fjórar kynslóðir Palestínumanna hafa búið í landinu en afkomendur flóttamanna sem komu til Líbanon árið 1948 fæddust í flóttamannabúðunum í Líbanon og hafa aldrei stigið fæti inn í Palestínu. Þrátt fyrir það virðist Palestína vera eina heimalandið sem þessir afkomendur samsama sig við. Til þess að öðlast heildarsýn á stöðu Palestínumanna í Líbanon er skoðað hvernig pólitísk framganga í landinu hefur haft áhrif á flóttamennina, hvaða borgararéttinda þeir njóta og hvar sé skortur á þeim og hver sé félagsleg staða Palestínumanna innan almenns samfélags í Líbanon.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Úlfhildur Ólafsdóttir.pdf | 532.14 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |