is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/11367

Titill: 
  • Rekstur hitaveitna á Íslandi. Arðsemi og náttúruleg einokun
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Um miðbik og síðari hluta 20. aldar var mikil uppbygging hitaveitna víða um land en með tilkomu þeirra bötnuðu lífsskilyrði og þörf fyrir innflutta orkugjafa minnkaði. Hitaveitur og önnur veitufyrirtæki njóta ákveðinnar sérstöðu þar sem rekstur langflestra stærri veitna hefur frá upphafi verið í eigu sveitafélaganna eða stofnana þeirra.
    Markmið þessarar ritgerðar er að skoða rekstur hitaveitna með því að kanna arðsemi fyrirtækjanna frá árinu 1973 til 2010. Ennfremur að skoða rekstur veitufyrirtækja út frá hagfræðikenningum um náttúrulega einkasölu sem þýðir að ódýrara er að láta eitt fyrirtæki þjóna tilteknu svæði eða markaði. Opinbert eignarhald hefur gefið sveitastjórnarmönnum og öðrum áhrifamönnum hvata til þess að hafa verðið of lágt á kostnað arðsemi fyrirtækjanna. Þar hefur því verið haldið fram að litlu skipti hvort arðurinn sé tekin út í formi arðgreiðslna eða lægra verðs en hér verður sýnt fram á að þetta sé ekki eins einfalt og ætla mætti í fyrstu.
    Niðurstöður rannsóknarinnar leiða í ljós að arðsemi veitufyrirtækja síðustu þrjá áratugi hefur verið mjög mismunandi á milli fyrirtækja eða allt frá því að vera 2% og upp í rúm 10%. Það sem vekur athygli er að minni veitufyrirtæki hafa oft haft meiri arðsemi og lægra verð auk þess að vera með hærri veltuhraða eigna.

Samþykkt: 
  • 4.5.2012
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/11367


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
REKSTUR HITAVEITNA Á ÍSLANDI Lokaskjal.pdf2.17 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna