Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/1139
Eftirfarandi verkefni er unnið sem lokaverkefni til B.Ed.-prófs við kennaradeild Háskólans á Akureyri á vormisseri 2002. Tilgangurinn er að kanna aðstæður tvítyngdra barna í leikskólum á Akureyri.
Í verkefninu er byrjað á að skilgreina helstu hugtök sem tengjast tvítyngi. Því næst er fjallað um máltöku tvítyngdra barna, tvítyngikennslu í leikskólum, fjölskylduaðstæður tvítyngdra og félagslega þætti tvítyngis.
Til þess að fá innsýn í stöðu tvítyngdra leikskólabarna eru lagalegar forsendur fyrir tvítyngikennslu skoðaðar auk þess sem kannað er hvernig stefnumótun í þessum málum er háttað í Reykjavík og nágrannalöndunum.
Í seinni hluta verkefnisins er fjallað um tvær rannsóknir sem gerðar voru í leikskólum á Akureyri fyrri hluta ársins 2002. Önnur rannsóknin segir til um fjölda tvítyngdra barna í leikskólum Akureyrarbæjar og það starf sem þar er unnið í þeirra þágu. Í hinni rannsókninni er kafað dýpra og leitað eftir sjónarmiðum starfsmanna annars vegar og foreldra hins vegar á aðstæðum tvítyngdra barna í leikskólum.
Helstu niðurstöður verkefnisins eru þær að 4% barna í leikskólum á Akureyri eru tvítyngd eða fjöltyngd og eru tungumálin sem þau tala auk íslensku 15 talsins. Algengast var að börnin ættu erlenda móður og íslenskan föður. Í flestum leikskólunum er ekkert starf í gangi vegna tvítyngis barna og aðeins er unnið markvisst að þessum málum í einum leikskóla.
Í viðtölum við foreldra koma fram mismunandi viðhorf til hlutverks leikskólans í uppeldi og menntun tvítyngdra barna auk þess sem væntingar foreldranna virðast mismiklar. Í máli leikskólakennaranna kemur fram að í leikskólunum er lögð ólík áhersla á þarfir þessara barna og starfið þar af leiðandi mismunandi.
Mikilvægt er að vekja athygli starfsfólks leikskóla og yfirvalda á nauðsyn þess að marka stefnu í málefnum tvítyngdra barna til þess að réttur þessara barna sé virtur.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
tvityngd.pdf | 590.28 kB | Lokaður | Tvítyngd leikskólabörn - heild | ||
tvityngd-e.pdf | 297.42 kB | Opinn | Tvítyngd leikskólabörn - efnisyfirlit | Skoða/Opna | |
tvityngd-h.pdf | 122.81 kB | Opinn | Tvítyngd leikskólabörn - heimildaskrá | Skoða/Opna | |
tvityngd-u.pdf | 69.27 kB | Opinn | Tvítyngd leikskólabörn - útdráttur | Skoða/Opna |