is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/11412

Titill: 
  • Samband vergar landsframleiðslu og atvinnuleysis: á lögmál Okuns erindi við íslenskar aðstæður?
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Farið er yfir sögu og tilurð lögmáls Okuns. Eldri rannsóknir eru skoðaðar og farið yfir gallana og hættur sem fylgja matinu á lögmálinu. Lögmálið er svo metið fyrir íslenskar aðstæður með þrenns konar aðferðum: mismunaaðferð, framleiðslubilsaðferð og dýnamískri aðferð. Tímabilið sem skoðað er er frá 1970-2011, annars vegar með árlegum gögnum og hins vegar með ársfjórðungslegum gögnum. Mat höfundar er það að lögmálið eigi illa við íslenskar aðstæður, sérstaklega á fyrri hluta tímabilsins þegar atvinnuleysi var mjög lágt á heimsvísu. Mælanlegt samband finnst en það er mjög mismunandi eftir aðferðum og tegund gagna. Þrátt fyrir lítinn áhrifamátt hagvaxtar sem skýristærðar virðast aðferðirnar allar sýna að aukning varð á Okun-stuðlinum á seinni hluta tímabilsins. Hér gæti kerfisbreyting á vinnumarkaði haft þau áhrif.

Samþykkt: 
  • 4.5.2012
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/11412


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Ritgerd.pdf1.62 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna