Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/11468
Áður en latneskt letur kom til sögunnar voru rúnir notaðar til skriftar í Norður-Evrópu og Norðurlöndunum og voru þær helst ristar á tré, stein og bein. Ekki eru rúnaáletranir eins í öllum löndum heldur hefur rúnastafrófið breyst og þróast í hinar ýmsu áttir. Rúnafræðingar hafa gert ýmsar tilraunir til samanburðar á mismunandi rúnahefðum og hafa þær leitt til margra og áhugaverðra niðurstaðna. Ekki hefur enn verið gerð tilraun til að gera samanburð á íslenskum á grænlenskum rúnaáletrunum, en það er það sem þessi ritgerð fjallar um. Til þess þarf að skoða áletranirnar sjálfar, tungumál og innihald, en einnig hvar þær finnast, eins og í uppgröftum eða á víðavangi, og hvernig varðveisluskilyrði hafa áhrif á varðveitingu áletranna
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
BA Ritgerðin-Loka.pdf | 635.37 kB | Opinn | Meginmál | Skoða/Opna | |
forsida_1.pdf | 29.46 kB | Opinn | Forsíða | Skoða/Opna | |
titilsida.pdf | 6.35 kB | Opinn | Titilsíða | Skoða/Opna |