Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/1146
Efnið sem er til umfjöllunar í þessari ritgerð er stærðfræðikennsla í grunnskólum. Fjallað er um allar námskrár sem gefnar hafa verið út og tengingu þeirra við sögulega þróun stærð¬fræði¬¬kennslu þar sem kennsluhættir og kennslubækur eru megin viðfangsefnið.
Í ritgerðinni leita ég svara við þremur rannsóknarspurningum með hliðsjón af fræðilegri umfjöllun og viðtölum sem ég átti við fjóra starfandi stærðfræðikennara á efsta stigi. Kennararnir eru allir menntaðir stærðfræðikennarar frá KHÍ með minnst fjögurra ára starfsreynslu. Rannsókarspurningarnar eru: Hvaða kennslu¬aðferðir eru algengastar í dag, með hliðsjón af söguágripi? Eiga kennslu¬aðferðirnar þátt í því hve mörgum nemendum gengur illa í stærðfræði? Hver er staða nemenda í stærð¬fræði við
lok grunnskóla?
Helstu niðurstöður eru þær að kennararnir nota alls sex kennsluaðferðir, samkvæmt flokkunarkerfi Ingvars Sigurgeirssonar, en tvær þeirra eru algengastar, útlistunarkennsla og þulunám-þjálfunaraðferðir. Þessar algengustu aðferðir henta flestum nemendum, að mati kennara, og því vart hægt að kenna kennslu¬aðferðum um hve margir nemendur eiga í erfiðleikum með stærðfærði. Kennurum bar flestum saman um að staða nemenda við lok grunnskóla væri almennt nokkuð góð og sagði einn kennarinn jafnframt, að auka mætti kröfurnar enn frekar.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
staerdfr.pdf | 579.41 kB | Takmarkaður | Stærðfræðikennsla í grunnskólum - heild | ||
staerdfr_e.pdf | 81.74 kB | Opinn | Stærðfræðikennsla í grunnskólum - efnisyfirlit | Skoða/Opna | |
staerdfr_h.pdf | 107.94 kB | Opinn | Stærðfræðikennsla í grunnskólum - heimildaskrá | Skoða/Opna | |
staerdfr_u.pdf | 61.28 kB | Opinn | Stærðfræðikennsla í grunnskólum - útdráttur | Skoða/Opna |