Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/11478
Markmiðið með þessari rannsókn er að kynnast tilfinningum og reynslu nokkurra einstaklinga sem hurfu frá námi í framhaldsskóla en ætla að hefja nám þar aftur til að ljúka stúdentsprófi. Þetta er mikilvægt til að varpa ljósi á hvað hindrar og hvað greiðir leið þessara nemenda aftur til náms. Gagna var aflað með viðtölum við sex einstaklinga á aldrinum 21-24 ára sem voru að hefja nám aftur á framhaldsskólastigi eftir mislangt hlé og einnig var rætt við tvo náms- og starfsráðgjafa í framhaldsskólum. Rannsóknin sýnir að helsta ástæða þess að viðmælendurnir snúa aftur til náms í framhaldsskólanum er vegna þess þrýstings sem þeir upplifa frá samfélaginu að mikilvægt sé að ljúka stúdentsprófi. Þeir upplifa greinilega margar hindranir á vegi sínum aftur til náms og eru þær af ýmsum toga, sálrænar, félagslegar, kerfislegar og fjárhagslegar. Greinilegt er að stefnuleysi þeirra í námsvali við upphaf framhaldsskólagöngunnar hefur átt stóran þátt í að þeir hurfu frá námi á sínum tíma og brotthvarfið þaðan hefur haft slæm áhrif á sjálfstraust þeirra til náms. Niðurstöðurnar varpa ljósi á að nauðsynlegt er að leita leiða til þess að auðvelda því unga fólki sem horfið hefur brott úr námi tækifæri til að auka við menntun sína.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
MA-ritgerð Ágústa.pdf | 374.14 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |