Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/1150
Eftirfarandi ritgerð er unnin sem lokaverkefni til B.Ed.-prófs við kennaradeild Háskólans á Akureyri vorið 2003.
Tilgangur ritgerðarinnar var að leita svara við spurningum eins og hvernig nýliðum vegnar í starfi, hvernig móttökur þeir fengu á nýjum vinnustað, hvort þeir fengu stuðning og hvaða væntingar þeir hefðu til starfsins. Einnig hversu margir nýliðar hætta störfum á fyrstu árum kennslunnar. Í þessum tilgangi var saminn spurningarlisti og hann sendur út til þeirra einstaklinga sem útskrifuðust úr kennaradeild Háskólans á Akureyri á árunum 1999-2002.
Helstu niðurstöður eru þær að nýliðar í kennslustörfum eru almennt ánægðir með störf sín og að brottfall úr kennslu hjá nýliðum er fátítt, þrátt fyrir að vinnuálag sé mikið og ýmsum erfiðleikum bundið. Bent er á nokkrar lausnir til að auðvelda nýliðunum fyrstu skrefin í kennslunni, því betur má ef duga skal.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
beturma.pdf | 1.15 MB | Takmarkaður | Betur má ef duga skal - heild | ||
beturma-e.pdf | 303.43 kB | Opinn | Betur má ef duga skal - efnisyfirlit | Skoða/Opna | |
beturma-h.pdf | 135.95 kB | Opinn | Betur má ef duga skal - heimildaskrá | Skoða/Opna | |
beturma-u.pdf | 102.08 kB | Opinn | Betur má ef duga skal - útdráttur | Skoða/Opna |