Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/11517
Mótun barna getur ráðist af því hvernig uppeldishætti foreldrar tileinka sér og hvernig þeim tekst til við foreldrahlutverkið. Hvernig staðið er að þroska barna í æsku getur haft áhrif á þau út lífið og geta börn þróað með sér geðræn vandkvæði ef foreldrar eru ekki nægjanlega vel í stakk búnir til að huga að þroskaferli þeirra. Áunninn heilaskaði getur haft alvarlegar afleiðingar á einstaklinga og fjölskyldu þeirra og sérstaklega yngstu meðlimi fjölskyldunnar, sem eru börnin. Tengslamyndun í bernsku getur haft áhrif á hvernig börn eigi eftir að spjara sig á fullorðnisárum ásamt því hvernig þörfum þeirra er mætt en foreldrar með heilaskaða eiga oft erfitt með að mæta þörfum barna sinna.
Í félagsráðgjöf er heildarsýn mikilvæg nálgun þar sem skoðað er samspil einstaklingsins og umhverfi hans. Félagsráðgjöf er fjölskyldu- og barnamiðuð og styðja félagsráðgjafar börn og fullorðna til þess að finna leiðir til úrbóta.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Svava Gudrun Hólmbergsdóttir.pdf | 474.49 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |