Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/11563
Ritgerðin fjallar um myndlistarmanninn Magnús Pálsson, en hann var frumkvöðull í íslensku listalífi. Hann var í hópi þeirra sem innleiddi ný viðmið í myndlist á Íslandi. Magnús hefur haldið því fram að á samstarfs- og vináttunótum komist listamaðurinn fram úr sjálfum sér, það sé ávinningur bæði fyrir hann og aðra. Þessi skoðun Magnúsar fékk notið sín þegar hann kenndi við Myndlista- og handíðaskóla Íslands um miðjan áttunda áratug síðustu aldar. Þar mótaði hann listkennslu á óvenjulegan og persónulegan máta, auk þess sem hann taldi að listkennsla væri ákveðið listform. Kennsluaðferðir Magnúsar í Nýlistadeildinni áttu m.a. þátt í að móta nýja kynslóð íslenskra listamanna og mynda mikilvæg tengsl við framsæknustu listaskóla í Evrópu.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Lokaritgerð til Skemmunnar 1.pdf | 837.08 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |