Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/11634
Er nauðsynlegt að skilja listaverk á einn hátt – eins og margir vilja meina? Til að svara þessari rannsóknarspurningu er stuðst við viðtalsrannsókn á viðhorfum samtímamyndlistamanna sem var sérstaklega unnin fyrir þessa ritgerð. Viðtalsrannsóknin sýnir að árekstur myndast á milli þeirra sem svo telja og samtímamyndlistamannanna sjálfra.
Meginmarkmið rannsóknarinnar er að greina hvað veldur árekstrinum á milli þessara ólíku sjónarmiða. Rýnt er í lausnir sem gætu hugsanlega komið í veg fyrir áreksturinn. Stuðst er við helstu fræðirit og kenningar um myndlistarfyrirbærið og tilvist þess í samtímanum, til þess að greina hvað veldur þessum árekstri. Rannsóknin er gerð út frá listfræðilegu og félagsfræðilegu sjónarhorni.
Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að þörf sé á róttækum hugarfarsbreytingum ef leysa á vandann og fjölga þeim sem gera sér grein fyrir virkni myndlistarformsins. En þó er enn mikilvægara að skapa aukið umburðarlyndi gagnvart fyrirbæri myndlistar – jafnvel þó ekki takist að fjölga áhorfendum hennar. Skortur á umburðarlyndi og þekkingarleysi gagnvart margfeldisáhrifum myndlistar í íslensku samfélagi veldur því að ákveðin baráttuhreyfing er að myndast innan sviðsins, en hún kallar á breytt hugarfar gagnvart myndlist í íslensku samfélagi.
Lykilorð: Listfræði, Myndlist, Rannsókn, Samfélagið,Ísland
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Ritgerð_BA_Listfræði_kijh_2012.pdf | 323.47 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |