is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/11689

Titill: 
  • Kynferðisofbeldi í æsku og parasambönd: Tilraunaverkefni með fræðslustarf
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Ætla má að fjöldi Íslendinga hafi orðið fyrir kynferðislegu ofbeldi í æsku. Í ljós hefur komið að afleiðingar þess geta haft alvarleg áhrif á andlega, líkamlega og félagslega heilsu þolenda. Þá geta afleiðingarnar einnig haft áhrif á nánustu aðstandendur þolenda, meðal annars maka þeirra og börn. Þrátt fyrir þær upplýsingar sem til eru um afleiðingar kynferðislegs ofbeldis í æsku virðist vera lítið um sérhæfð meðferðarúrræði fyrir þennan hóp hér á landi.
    Meistaraverkefni þetta er tilraunverkefni og er markmið þess að leggja grunn að paranámskeiði fyrir þolendur kynferðisofbeldis í æsku og maka þeirra. Námskeiðið er byggt upp á fræðslu og umræðum og er tilgangur þess að auka skilning þátttakenda á afleiðingum kynferðislegs ofbeldis í æsku og kynna leiðir sem hægt er að styðjast við á bataleiðinni. Í víðara samhengi er verkefninu ætlað að vera framlag til aukinnar þekkingar fagfólks á afleiðingum ofbeldisins fyrir þolendur og aðstandendur þeirra, sem og möguleikum í meðferð með þeim.
    Helstu hugtök: Kynferðislegt ofbeldi gegn börnum, þolendur kynferðisofbeldis í æsku, kynferðisleg misnotkun, parasambönd, parameðferð.

Samþykkt: 
  • 14.5.2012
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/11689


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
MA verkefni- skemman.is.pdf812.68 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna