is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Verkfræði- og náttúruvísindasvið > B.S. verkefni - Verkfræði- og náttúruvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/11728

Titill: 
  • Kvikmyndadrifin ferðamennska: Tækifæri í markaðssetningu á Íslandi sem áfangastað
  • Titill er á ensku Film-induced tourism: Marketing opportunity for Iceland as a destination
Námsstig: 
  • Bakkalár
Leiðbeinandi: 
Útdráttur: 
  • Kvikmyndadrifin ferðamennska og markaðssetning með þekktum kvikmyndum hefur verið að færast í aukanna. Skilgreina má kvikmyndadrifna ferðamennsku þannig að ferðamaðurinn laðast sérstaklega að áfangastað sem hann hefur séð í ákveðinni kvikmynd. Þannig hafa þeir sem sjá um markaðsetningu áfangastaðar farið að nýta sér þekktar kvikmyndir í því skyni að markaðsetja áfangastaði og landið sjálft. Nærtæk dæmi eru Bretland og Nýja Sjáland, þau lönd hafa nýtt sér kvikmyndir í markaðsetningu. Hafa þau fundið fyrir aukningu í ferðamennsku vegna þess. Markmið rannsóknarinnar var að skoða stöðu kvikmyndadrifinnar ferðamennsku hér á landi og möguleika á markaðssetningu á Íslandi í gegnum kvikmyndir. Einnig var við rannsóknina lagt upp með að finna út hver þekkingin á kvikmyndadrifinni ferðamennsku sé innan ferðaþjónustunnar á Íslandi. Við gagnaöflun var notast við eigindlegar rannsóknaraðferðir. Þannig byggðist rannsóknin á átta hálfstöðluðum viðtölum og í einu tilfelli var viðtalsramma svarað í gegnum tölvupóst. Niðurstöður rannsóknarinnar sýndu að það er ekki mikil þekking á kvikmyndadrifinni ferðamennsku hér á landi og má segja að hún sé á byrjunarstigi. Þá er lítið um að Ísland sé markaðssett í kvikmyndum eða sjónvarpsþáttum. Möguleikarnir með markaðssetningu eru þó miklir og gæti verið góð viðbót í kynningu á Íslandi. Niðurstöður rannsóknarinnar sýndu einnig að áhugi er fyrir samvinnu á milli kvikmyndafyrirtækja og ferðaþjónustufyrirtækja til að skapa ferðaþjónustu sem tengist kvikmyndum.

  • Útdráttur er á ensku

    Abstract: Film-induced tourism: Marketing opportunity for Iceland as a destination
    Film induced tourism and markerting destinations through blockbuster films have been increasing through the years. Film-induced tourism involves that a tourist travels to destination because of seeing a film linked to the destination. DMO’s have recently been taking advantage of that by marketing countries through films. Examples of Britain and New Zealand show that the countries that have been exposed in films have increased their tourism. The purpose of this paper is to illustrate film induced tourism in Iceland. To look at what can be done in marketing Iceland through films. And also looking at what knowledge is in tourism of the term film-induced tourism. And to look at what affect it can have on Iceland as a film-induced destination. Research data was collected with qualitative methods. Eight interviews were taken with people in the tourism- and film industry. The results indicate that there is little knowledge of film-induced tourism in Iceland and it is only in its beginning stages. Yet it has been proven that film-induced tourism has impact on tourist travel locations. Movies can be good marketing tool. But it is not effective enough alone but it is clearly a good input in marketing.

Samþykkt: 
  • 18.5.2012
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/11728


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Bríet Rún_ritgerð-tilbuin.pdf453.96 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna