is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Verkfræði- og náttúruvísindasvið > B.S. verkefni - Verkfræði- og náttúruvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/11738

Titill: 
  • Fjölgun skemmtiferðaskipa og áhrif hennar á vinsæla ferðamannastaði
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Undanfarin ár hefur verið mikill vöxtur í ferðaþjónustu á Íslandi og samfara þessari miklu fjölgun ferðamanna hefur komum skemmtiferðaskipa einnig fjölgað gríðarlega. Markmiðið með þessari rannsókn var að kanna hvort helstu viðkomustaðir skemmtiferðaskipafarþega séu í stakk búnir til að taka á móti þeim fjölda ferðamanna sem er á ferðinni þá daga sem stór skip eru í höfn. Markmiðið er einnig að kanna hvað þurfi að gera á þessum stöðum til þess að taka á móti ört fjölgandi og stækkandi skemmtiferðaskipum hingað til landsins. Einblínt verður á viðkomustaði í ferðum út frá Reykjavíkurhöfn í þessari rannsókn.
    Helstu niðurstöður sýndu að algengustu viðkomustaðir skipafarþega, Þingvellir, Gullfoss, Geysir og Bláa Lónið, ráða undir venjulegum kringumstæðum enn sem komið er við fjöldann. Á þeim dögum, sem fleiri en eitt og jafnvel fleiri en tvö skip eru í höfn, verður ástandið hins vegar erfiðara. Rannsakandi telur að þess sé ekki langt að bíða að þolmörkum á þessum helstu ferðamannastöðum verði náð og ef það á ekki að gerast þarf aukið skipulag og meiri uppbyggingu á stöðunum. Einnig er góð samvinna meðal allra sem standa að skipakomum nauðsynleg ef ekki á illa að fara.

  • Útdráttur er á ensku

    For the past years there has been significant increase in tourism in Iceland and in the meantime cruise ships have also been coming more frequently. The goal of this study is to explore whether this increase is having negative impact on the most popular tourist attractions that cruise ship passengers stop at. The goal is also to explore what there has to be done at these places to be able to welcome rapidly increasing and expanding cruise ships to Iceland. The focus in this study will be on attraction points from the harbour of Reykjavík.
    The main results indicate that the main attractions of cruise ship passengers, Þingvellir, Gullfoss, Geysir and the Blue Lagoon, are under normal circumstances still managing to handle this number of people. On days when there are more than one and even more than two ships in dock the situation gets tougher. The researcher believes that it will not last long until the main tourist attraction points will reach their carrying capacity, and to prevent this, further organization and better infrastructure at these places is needed. Furthermore, increased and better cooperation between those involved in the cruise ship arrivals is necessary in order to prevent this negative development to happen.

Samþykkt: 
  • 18.5.2012
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/11738


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Sindri Viðarsson-ritgerð.pdf407.02 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna