is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Verkfræði- og náttúruvísindasvið > B.S. verkefni - Verkfræði- og náttúruvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/11781

Titill: 
  • Hvers vegna heimsækja ferðamenn kirkjur?
Námsstig: 
  • Bakkalár
Leiðbeinandi: 
Útdráttur: 
  • Undanfarin ár hefur fjölgun ferðamanna til landsins farið langt fram úr öllum áætlunum og ef þessi þróun heldur áfram þarf að auka framboð á afþreyingu fyrir ferðamenn. Aðal-áherslan á kynningu á landinu hefur verið náttúran og víðernin. Þörf er á að finna leiðir til að kynna margbreytileika menningararfs þjóðarinnar og gera hann sýnilegri. Heimsóknir ferðamanna í kirkjur hafa tíðkast í margar aldir og má tengja þær athafnir við menningartengda ferðaþjónustu.
    Í þessari ritgerð verður greint frá niðurstöðum rannsóknar á kirkjuheimsóknum erlendra ferðamanna. Tilgangur rannsóknarinnar var að fá innsýn í hvers vegna ferðamenn heimsækja kirkjur. Ýmsir fræðimenn tengja athafnir ferðamanna sem heimsækja kirkjur við kenningar um pílagrímsferðir og verður það kannað nánar.
    Í rannsókninni var notuð blönduð rannsóknaraðferð, það er bæði eigindleg og megindleg. Spurningarblað var afhent af handahófi þrjátíu erlendum ferðamönnum sem heimsóttu Háteigskirkju í júlímánuði 2011. Niðurstöður rannsóknarinnar sýndu að þriðjungur ferðamannanna heimsóttu kirkjuna vegna byggingarlistar hennar, þar á eftir komu orðin menning, trú eða bæn.
    Lykilorð: Kirkjur, athafnir, ferðamenn, pílagrímsferðir.

  • Útdráttur er á ensku

    In recent years the number of tourists to Iceland has reached all expectations, and if this trend will continue, there will be a need to increase the availability of entertainment for tourists. The primary focus presenting the country has long been nature and wilderness. On the other hand, tourists visiting churches have been common for many centuries and can be linked to the activities of cultural tourism. And for that matter, there is a need to find ways to promote diversity of the cultural heritage and make it more visible.
    In this dissertation, I will report the results of the research, why foreign tourists visit churches. As the purpose of this study was to gain insight into why tourists visit churches. Furthermore, some scholars link the actions of tourists who visit churches to the theory of pilgrimage tours.
    In this study a mixed research methods was used, both qualitative and quantitative. A questionnaire was handed out to thirty foreign tourists, who visited Háteigskirkja in July, 2011. The results indicated that one third of the tourists visited the church because of its architecture, followed by the words culture, religion or prayer.
    Keywords: Churches, activities, tourist, pilgrimage tours.

Samþykkt: 
  • 23.5.2012
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/11781


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
BS ritgerð_Jenný Björgvinsdóttir.pdf491.86 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna