Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/11809
Verkefnið er fræðileg úttekt á meðferðinni „Proactive support of labour – The challenge of normal childbirth“ (PSL) með það að leiðarljósi að skoða áhrif meðferðar og árangur í fæðingum á sjúkrahúsi höfunda í Hollandi. Úttektin fólst einnig í því að skoða þætti sem tengjast þessari meðferð sem og nýlegar rannsóknir. Til samanburðar voru fengnar upplýsingar um hvernig meðferðin hefur virkað á fæðingardeildinni við háskólasjúkrahúsið í Osló. Heimilda var að mestu aflað í gegnum gagnasöfnin Pub-Med, Chinal og Google Scholar.
Fræðimennirnir að baki PSL vilja sporna við aukinni sjúkdómsvæðingu í fæðingum sem og hækkandi tíðni keisaraskurða. Þeir vilja efla jákvæða upplifun konu af fæðingu sinni með því að veita einstaklingshæfða þjónustu, ásamt því að efla góða samvinnu ljósmæðra og lækna á hverjum stað fyrir sig.
Verklag PSL hefur reynst vel og virðist lækka töluvert tíðni keisaraskurða, bæði á fæðingardeild höfunda og í Osló. Þá virðist meðferðin stuðla að minni notkun utanbastsdeyfinga og konur tjá góða upplifun af fæðingunni. Í ljósi þessa væri áhugavert að reyna PSL meðferðina hérlendis í þeim tilgangi að lækka tíðni keisaraskurða og ekki síður til að fækka utanbastsdeyfingum sem eru margfalt algengari hérlendis en á sjúkrahúsi höfunda.
Lykilorð: frumbyrja, langdregin fæðing, Syntocinon® örvun, stuðningur ljósmóður, inngrip í fæðingu.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Ritgerð - Guðrún Ásta G.pdf | 608.43 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |