is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Listaháskóli Íslands > Hönnunar- og arkitektúrdeild / Department of Design and Architecture > Ritgerðir til BA-gráðu / BA theses (BA) >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/11830

Titill: 
  • Hussein Chalayan og áhrif umhverfis á fatnað
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Ritgerð þessi lýsir hvernig umhverfisáhrif úr samfélaginu hafa haft áhrif á fatnað og fatahönnun. Þau áhrif koma meðal annars úr samfélaginu sem og pólitíkinni, nýjustu tækninni og veðráttunni. Þessir þættir sem hafa áhrif á fatahönnun verða skoðaðir í samfloti með hugmyndafræði fatahönnuðarins Hussein Chalayan, þar sem að hann var mikill innblástur við skrif og hugleiðingar í efni ritgerðarinnar. Hugmyndafræðin hans snýst s.s. mikið um það að finna innblástur út frá utanáliggjandi áhrifum sem eru að finna í nútímasamfélagi, í náttúrunni og hvernig hann vinnur úr þeim og eða hvernig hann tjáir sig og eða vekur athygli á atburðum sem gerast í heiminum sem eru næst honum og hans áhugasviði. Miðillinn sem hann velur að tjá hugmyndir sínar eru flíkurnar sem hann hannar og býr til. Í ritgerðinni verður farið yfir helstu verk hans og hugmyndafræði á bakvið fatnaðinn til að öðlast dýpri skilning á hversu margþætt hönnunarferli getur orðið. Til rökstuðnings verður tekið fyrir umhverfisþáttinn vindinn til útskýringar á þessu hönnunarferli, hvernig hann hefur áhrif á fatnað og lagt verður áherslu á að útskýra ferlið skref fyrir skref. Í áframhaldinu verður útskýrt hvað það er sem býr að baki við gerð fatnaðar í hönnunar- og eða listrænum tilgangi og alla leið til endaútkomu fatnaðarins sem útskýrt verður með myndum. Chalayan sem fatahönnuður er ef til vill í þeim flokki sem hannar flíkur í þeim tilgangi að vera frekar list heldur en tilbúnar flíkur. Því að oft en ekki eru flíkurnar sem hann hannar þannig að þær eru framúrstefnulegar að því leyti að tæknin í dag er ekki nógu þróuð svo þær séu nothæfar í daglega notkun. Chalayan beislar hið ósýnilega í umhverfinu þar á meðal vindinum og gerir umhverfisþáttinn sýnilegan með því að tjá hann í fatnaði og með öðrum miðlum sem og rýmisverkum og vídeo verkum til að útskýra sig enn frekar og til að fólk öðlist meiri skilning á hvað það er sem hann er að reyna að tjá. Hann er maður hugsjóna og virðist vilja vekja umhugsunar á því sem er næst okkur í umhverfinu, og því sem er svo nálægt okkur að það snertir líkama okkar, fatnaðurinn.

Samþykkt: 
  • 25.5.2012
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/11830


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Lokaritgerd.pdf936.27 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna