is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Verkfræði- og náttúruvísindasvið > B.S. verkefni - Verkfræði- og náttúruvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/11842

Titill: 
  • Tengsl borgarskipulags og ferðamáta íbúa á höfuðborgarsvæðinu
Námsstig: 
  • Bakkalár
Leiðbeinandi: 
Útdráttur: 
  • Síðan einkabíllinn varð almenningseign hefur hlutdeild hans í ferðamáta fólks aukist til muna ásamt því að skipulag borga hefur tekið miklum breytingum. Breytingarnar felast aðallega í að borgir hafa dreift úr sér og þéttleiki byggðar hefur minnkað. Landnotkun er einsleitnari og íbúaþéttleiki hefur minnkað til muna. Tilkoma einkabílsins hefur haft talsverð áhrif. Hér eru kynntar niðurstöður rannsóknar á tengslum borgarskipulags og ferðamáta íbúa á höfuðborgarsvæðinu. Leitast var við að svara því hvort aukinn íbúaþéttleiki, aukin blöndun landnotkunar og aukinn þéttleiki byggðar leiddu til minni notkunar einkabílsins. Rannsóknin er byggð á könnun sem Capacent Gallup vann fyrir sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu þar sem ferðamáti íbúa höfuðborgarsvæðisins var kannaður. Niðurstöður rannsóknar virðast benda til að einsleit landnotkun og minni þétting byggðar auki líkur á að fólk nýti sér einkabílinn.

Samþykkt: 
  • 29.5.2012
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/11842


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Tengsl borgarskipulags og ferðamáta íbúa á höfuðborgarsvæðinu.pdf2.06 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna