Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/11842
Síðan einkabíllinn varð almenningseign hefur hlutdeild hans í ferðamáta fólks aukist til muna ásamt því að skipulag borga hefur tekið miklum breytingum. Breytingarnar felast aðallega í að borgir hafa dreift úr sér og þéttleiki byggðar hefur minnkað. Landnotkun er einsleitnari og íbúaþéttleiki hefur minnkað til muna. Tilkoma einkabílsins hefur haft talsverð áhrif. Hér eru kynntar niðurstöður rannsóknar á tengslum borgarskipulags og ferðamáta íbúa á höfuðborgarsvæðinu. Leitast var við að svara því hvort aukinn íbúaþéttleiki, aukin blöndun landnotkunar og aukinn þéttleiki byggðar leiddu til minni notkunar einkabílsins. Rannsóknin er byggð á könnun sem Capacent Gallup vann fyrir sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu þar sem ferðamáti íbúa höfuðborgarsvæðisins var kannaður. Niðurstöður rannsóknar virðast benda til að einsleit landnotkun og minni þétting byggðar auki líkur á að fólk nýti sér einkabílinn.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Tengsl borgarskipulags og ferðamáta íbúa á höfuðborgarsvæðinu.pdf | 2.06 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |