is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Félagsvísindasvið > B.A./B.Ed./B.S. verkefni - Félagsvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/11883

Titill: 
  • „Þá kyssti ég stelpu á munninn, í fyrsta sinn." Rannsókn á þróun og hlutverki Síldarævintýrisins á Siglufirði
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Ritgerðin fjallar um þróun bæjarhátíðarinnar Síldarævintýri á Siglufirði og hlutverk hennar fyrir þátttakendur og gesti hátíðarinnar. Hátíðin hefur verið haldin árlega í rúmlega tvo áratugi og er runnin af rótum sögu, minninga og hefða byggðalagsins. Hátíðin er í raun fyrsta bæjarhátíðin sem haldin var með slíku sniði en í dag eru haldnar bæjarhátíðir víða um landið og má því segja að Síldarævintýrið á Siglufirði hafi sannarlega rutt brautina.
    Í rannsókninni er meðal annars gengið út frá nokkrum helstu kenningum og hugtökum fræðimanna um hátíðir, karnival og jaðartímabil og þau sett í samhengi við viðburði hátíðarinnar og upplifun þáttakenda. Með slíkt að markmiði er farið yfir meginþætti hátíðarinnar, rætur hennar, tilurð og tilgang ásamt þeim breytingum sem orðið hafa í gegnum lífsskeið hennar frá byrjun og gætu mögulega varpað ljósi á hlutverk hennar fyrir þátttakendur dagsins í dag.
    Ritgerðinni er skipt í sex kafla og fjallar fyrsti kaflinn um fyrrnefnd hugtök og kenningar auk þess sem rannsóknin er kynnt. Í öðrum kafla má lesa um rætur og sögulegan bakgrunn hátíðarinnar en í þriðja kafla er rætt um hátíðina sjálfa og þátttakendur hennar en þar má einnig finna umfjöllun og tilvitnanir í viðtöl og aðrar heimildir sem safnað var í tilefni rannsóknarinnar. Í fjórða kafla er fjallað um hátíðina í ljósi kenninga en fimmti kafli inniheldur samantekt efnistaka og umræður um niðurstöður rannsóknarinnar. Lokaorð og niðurstöður eru að endingu birtar í sjötta og síðasta kafla ritgerðarinnar en þær benda til þess að hátíðin sé haldin á jaðartíma og marki því ákveðin tímamót auk þess að vera menningarlega sérstök fyrir þátttakendur. Hátíðin gefur þeim færi á að bregða sér frá hversdagslegu amstri og lyfta sér upp og má því sannarlega kalla hana hátíð fólksins.

Samþykkt: 
  • 31.5.2012
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/11883


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Þá kyssti ég stelpu á munninn í fyrsta sinn. 1.pdf2.14 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna