is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Listaháskóli Íslands > Myndlistardeild / Department of Fine art > Lokaritgerðir / Theses (BA) >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/11948

Titill: 
  • Í norðanvindi með Lupatré
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Í þessum texta er fjallað um raunveruleikann, eftirmyndir hans, hið ímyndaða og aðra heima, flóttahneigð fantasíunnar og sýndarveruleikans. Spurningin um hvað sé ímyndað og hvað sé raunverulegt er krufin á skurðborði listarinnar og vöngum er velt um eftirlíkingar raunveruleikans með hjálp heimspekinga á borð við Platón, Baudrillard og Jean-Paul Sartre. Reynt er að gera grein fyrir hinum ýmsu leiðum listarinnar sem bjóða upp á glugga frá raunveruleikanum og inn í aðrar veraldir og hvernig umhverfið hefur áhrif á samruna þessara heima. Hvort sem um er að ræða flóttahneigð, drauma eða aðferðir og ástand þar sem skynjun á raunveruleikanum hefur áhrif á listsköpun. Uppfinningar og undarlegar súrrealískar samsetningar setja svip sinn á heildartextann ásamt því hvernig ósjálfráð skrif og teikningar geta opnað hugann fyrir frekari sköpun svo að flæði ímyndunaraflsins nái að blómstra.

Samþykkt: 
  • 1.6.2012
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/11948


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Lokaritgerd.pdf494.02 kBLokaðurHeildartextiPDF