is Íslenska en English

Lokaverkefni (Meistara)

Háskóli Íslands > Heilbrigðisvísindasvið > Meistaraprófsritgerðir - Heilbrigðisvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/12010

Titill: 
  • Blóðsykurslækkun hjá nýburum. Algengi, áhættuþættir og blóðsykurseftirlit
Námsstig: 
  • Meistara
Útdráttur: 
  • Eftirlit með blóðsykri er mikilvægt fyrst eftir fæðingu hjá ákveðnum hópum nýbura. Menn greinir á um skilgreiningu of lágs blóðsykurs hjá nýburum og hver gildi hans þurfi að vera til að tryggja eðlilega líkamsstarfsemi. Óvissa einkennir því ákvarðanatöku um eftirlit með blóðsykri nýbura: hverja eigi að mæla og hvenær og við hvaða gildi blóðsykurs eigi að hefja íhlutun.
    Algengi blóðsykurslækkunar er ekki þekkt á Íslandi, markmið þessarar rannsóknar var að greina það og bera saman við niðurstöður erlendra rannsókna og kanna hvernig staðið sé að eftirliti með blóðsykri nýbura.
    Rannsóknin var lýsandi, afturskyggn og upplýsinga aflað úr sjúkraskrám. Almennar upplýsingar um börnin voru skráðar ásamt blóðsykursgildum og framkvæmd eftirlits með þeim.
    Úrtakið voru þeir nýburar sem gengist höfðu undir eftirlit með blóðsykri fyrstu þrjá sólarhringana eftir fæðingu á Landspítala, alls 955 af 3468 sem þar fæddust árið 2010. Meðgöngulengdin var frá 24 – 42 vikur og rúm 77% voru fullburða (>37 vikur). Meðal fæðingarþyngd var 3273 g (530 – 5280 g). Tæp 35% fæddust með keisaraskurði, 32,5% lögðust inn á nýburagjörgæslu og 30,2% komu þangað í stutt eftirlit.
    Algengi blóðsykurslækkunar (< 2,2 mmól/L) reyndist vera 21,2% í heild en 19,1% meðal fullburða nýbura. Fyrsta mæling var gerð innan klukkustundar frá fæðingu hjá 60% nýbura. Blóðsykur var mældur einu sinni hjá 16,4% nýburanna, en miðgildið var fjórar mælingar fyrstu þrjá sólarhringana. Lægsti blóðsykur mældist 0,3 mmól/L og alls mældust 20 nýburar með blóðsykur < 1mmól/L. Rúmlega 55% mældust með lægsta gildi innan tveggja klukkustunda frá fæðingu.
    Algengi blóðsykurslækkunar var hátt í samanburði við erlendar rannsóknir. Það skýrist að hluta til af samsetningu úrtaks, þar sem ekki var aðeins um heilbrigða fullburða nýbura að ræða. Eftirlit með blóðsykri reyndist ómarkvisst, stór hluti mælinga var innan klukkustundar frá fæðingu og því má ætla að erfitt hafi verið að greina á milli óeðlilegrar blóðsykurslækkunar og eðlilegrar aðlögunar nýburans að lífi utan móðurkviðar.

Samþykkt: 
  • 4.6.2012
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/12010


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
ms_ritgerd_elin_hfr_snidmat2.pdf1.22 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna