Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/12029
Í þessari ritgerð langar mig til þess að skoða hvað felst í listsköpun. Hvaða möguleikar felast í henni til að komast nær sálu minni og af hverju ég fæst við hana.
Í fyrsta kaflanum Ást, Guð og list fjalla ég um þrjú fyrirbæri sem eru mér kærust og velti fyrir mér hvort sjálfhverf list sé yfirhöfuð mikilvæg.
Í kaflanum Málverk finnst mér mikilvægt að takast á við helsta miðil minn, málverkið og skoða stöðu þess í samtímanum.
Í þriðja kaflanum Bernsku skoða ég hugmyndir, sem ég hef fengið er tengjast bernsku minni og velti fyrir mér hvernig sköpun mín og æska haldast í hendur og af hverju.
Kaflinn eftir Bernsku nefnist Sígild togstreita og þar segi ég frá andstæðunum; skipulag og óreiða og hvernig þær endurtaka sig ómeðvitað í verkum mínum.
Seinasti kaflinn, Út fyrir þægindasviðið fjallar um þau verk sem ég skapa til þess að fá útrás eftir að hafa unnið að ‘alvarlegri‘ verkum.
Í lokaorðum reyni ég að fá heildarsýn á alla þætti sköpunar minnar og set þá í samhengi við það sem er hjarta mér næst.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Lokaritgerd.pdf | 1.41 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |