is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Heilbrigðisvísindasvið > B.S. verkefni - Heilbrigðisvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/12130

Titill: 
  • Hvað spáir fyrir um árangur af hugrænni atferlismeðferð í hópi og almennri hópmeðferð við félagsfælni meðal háskólanema?
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Í þessari rannsókn var athugað hvort forðunarpersónuleikaeinkenni (FPE), alvarleiki einkenna og þunglyndi spáðu fyrir um árangur af hugrænni atferlismeðferð í hópi (HAMH) og almennri hópmeðferð (AH) við félagsfælni (FF) meðal 45 háskólanema með FF sem megingreiningu. Þátttakendum var raðað handahófskennt í annaðhvort HAMH eða AH. Niðurstöður þessarar rannsóknar voru þær að FPE hafði hvorki áhrif á árangur meðferðar í HAMH né AH. Alvarleiki einkenna spáði fyrir um verri árangur af meðferð í HAMH, þvert á fyrri rannsóknir, og AH. Einstaklingar sem greindir voru með núverandi alvarlega geðlægð (e. major depression) eða óyndi (e. dysthymia) í upphafi meðferðar náðu verri árangri í HAMH en þeir sem ekki voru þunglyndir. Þessi áhrif komu ekki fram í AH. Í ljósi þessara niðurstaðna leggjum við til að þróa áfram hópmeðferð við FF með því að taka árangursríkustu þættina úr HAMH og AH, með það að markmiði að draga úr brottfalli, auka árangur meðferðar og í þeirri von að meðferð henti betur einstaklingum sem eru greindir með alvarlegt þunglyndi eða óyndi í upphafi meðferðar.

Samþykkt: 
  • 13.6.2012
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/12130


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Daðey_Albertsdóttir_Helgi_Óttarr_Hafsteinsson.pdf319.5 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna