Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/12132
Viðtekin sannindi hafa þótt hér á landi að hrepparígur sé eyðandi afl sem standi framþróun fyrir þrifum. Í eigindlegri rannsókn sem gerð var meðal öldunga í Fjallabyggð sumarið 2010 birtist gamalkunnur hrepparígur milli Ólafsfirðinga og Siglfirðinga en samkvæmt rannsókninni líta aldraðir íbúar á Tröllaskaga ekki á ríginn sem neikvætt fyrirbæri. Í þessari ritgerð verður varpað fram þeirri spurningu hvort hrepparígur hafi gegnt félagslegu hlutverki í samskiptum einangraðra íbúa á Tröllaskaga og líkum leitt að því að hrepparígur hafi átt þátt í að auka samstöðu íbúahópanna tveggja, Ólafsfirðinga og Siglfirðinga, og aðgreina þá frá öðrum á umbrots- og breytingatímum. Er stuðst við funksjónalíska átakakenningu bandaríska félagsfræðingsins Lewis Coser í þeirri greiningu.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
BARITGERD.pdf | 654.99 kB | Opinn | Skoða/Opna |