is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Hug- og félagsvísindasvið > B.A./B.Ed. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/12135

Titill: 
  • „Maður hefur lært helling í rauninni á því að vera í fangelsi“ : rannsókn á reynslu fanga um fangelsisdvöl í fangelsinu á Akureyri og fangelsinu við Kópavogsbraut
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Í vestrænum þjóðfélögum er lagt mikið upp úr því að markmið fangelsisvistar sé betrunarvist. Í því felst að umhverfi innan fangelsa á að vera uppbyggjandi fyrir einstaklinga og veita þeim möguleika á að koma lífi sínu í réttan farveg. Ef betrunarvist á að eiga sér stað þá er mikilvægt að aðbúnaður sé fullnægjandi, samskipti manna á milli séu mannleg, byggist á virðingu og nægilegt framboð sé á skipulögðum athöfnum innan fangelsa. Þegar betrunarvist skilar tilsettum árangri veitir það einstaklingum möguleika á að snúa aftur til samfélagsins sem betri menn. Markmið þessarar rannsóknar er að varpa ljósi á líðan fanga með því að horfa til félagslegra tengsla og aðbúnaðar í fangelsum. Beitt er eigindlegum rannsóknaraðferðum þar sem viðtöl voru tekin til þess að afla gagna. Til að fá betri yfirsýn á aðstæður fanganna var ákveðið að taka viðtöl við fanga bæði í fangelsinu á Akureyri og í fangelsinu við Kópavogsbraut. Niðurstöður rannsóknarinnar leiða í ljós að þátttakendur telja sig vera í góðum félagslegum tengslum bæði innan sem utan fangelsisveggjanna. Aftur á móti eru tengslin misjafnlega góð þegar betur er að gáð. Niðurstöður sýna einnig að þátttakendur telja sig ekki hafa nóg fyrir stafni og vilja að aukið sé við framboð á athöfnum innan fangelsanna. Ef litið er til aðbúnaðar í hvoru fangelsinu fyrir sig þá sýna niðurstöður að þátttakendur, sem afplána í fangelsinu á Akureyri, eru ánægðari með aðbúnað en þeir sem dvelja í fangelsinu við Kópavogsbraut. Þá sýna niðurstöðurnar að almennt séð eru þátttakendur ánægðir með fangelsisdvöl sína að undanskilinni frelsissviptingunni og telja þeir að fangelsisdvölin eigi eftir að skila tilsettum árangri.

  • Útdráttur er á ensku

    The Western societies have made a goal that prison is correctional facility. This implies that the environment within prisons should be empowering for each individual and giving them the option to bring their lives into the proper channels. For the correctional facility to occur it is important that facilities are adequate, communication between people are human and respectable and adequate supply is a regulated activity within prisons. When correctional stay returns due performance it provides people, the option to return to society as better people. The aim of this study is to shed light on the well being of prisoners by looking for social connections and facilities for prisons. Using the qualitative research where interviews were conducted to obtain data. To get a better perspective on their situation, it was decided to interview prisoners in two different prisons, at Akureyri and Kópavogsbraut. Findings reveal that respondents believe they are in a good social network both inside and outside prison walls. In contrast, the relationship is different when a good closer scrutiny. Results also show that respondents believe they do not have enough to do and want to increase the supply of activities within the prison. Looking at the facilities in each prison separately, the results show that participants who serve in prison in Akureyri are more satisfied with working conditions than those who stay in prison at Kópavogsbraut. Furthermore, results show that in general the participants are satisfied with their stay in prison with the exception of deprivation of liberty and believe there stay in prison will return the specified performance.

Athugasemdir: 
  • Verkefnið er lokað til 15.6.2012.
Samþykkt: 
  • 13.6.2012
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/12135


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Lokaverkefni til 180 eininga B.A.-prófs.pdf722.79 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna