is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Viðskipta- og raunvísindasvið > B.S. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/1214

Titill: 
  • Lágmörkun olíukostnaðar sjávarútvegsfyrirtækja með notkun afleiðna
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Verkefnið fjallar um áhættustýringu á olíu (e. hedging) með notkun
    afleiða (e. derivatives) í rekstri íslenskra sjávarútvegsfyrirtækja.
    Verkefnið hefst á almennri umfjöllun um áhættuþætti í sjávarútvegi og
    olíumarkaðinn. Næst er fræðileg umfjöllun um notkun afleiðna sem
    áhættuvörn og hvaða fjármálaafurðir séu í boði á framvirka
    olíumarkaðinum.
    Með notkun áhættuvarna er hægt að minnka sveiflur í rekstri fyrirtækja
    og þar með bæta afkomu. Íslensk sjávarútvegsfyrirtæki búa við
    töluverða óvissu, þ.m.t óvissa um olíuverð. Miklar sveiflur í olíuverði
    geta haft áhrif á afkomu útgerðarfyrirtækja, þar sem olíukostnaður er
    einn af stærstu kostnaðarliðum. Olíuverð hefur ekki eins afgerandi áhrif
    á sjávarútvegsfyrirtæki sem eru með fleiri rekstrareiningar á breiðari
    sviði, en þó er mikilvægt að rekstrareiningarnar standi undir sér.
    Hannað var líkan til að meta ávinning af áhættuvörn á olíumarkaði og
    því svo beitt við raunverulegar aðstæður. Samherji hf. var tekinn sem
    dæmi og líkaninu beitt á söguleg gögn úr rekstri Samherja hf. yfir
    tímabilið 2003-2006. Niðurstaðan var sú að mögulegt er að lágmarka
    olíukostnað Samherja hf. með því að notast við afleiður.
    Lykilorð: Afleiður, áhættuvarnir, olíuverðsáhætta, sjávarútvegsfyrirtæki

Athugasemdir: 
  • Verkefnið er lokað til 02.05.2010
Samþykkt: 
  • 1.1.2007
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/1214


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Lágmörkun oliukostnaðar með notkun afleiðna.pdf566.77 kBOpinnLágmörkun - heildPDFSkoða/Opna
efnisyfirlit.pdf56.39 kBOpinnLágmörkun - efnisyfirlitPDFSkoða/Opna
Heimildaskrá.pdf78.11 kBOpinnLágmörkun - heimildaskráPDFSkoða/Opna
útdráttur.pdf70.07 kBOpinnLágmörkun - útdrátturPDFSkoða/Opna
Viðaukar.xls88 kBOpinnLágmörkun - viðaukar1Microsoft ExcelSkoða/Opna
Vilnanir-líkan.xls7.71 MBOpinnLágmörkun - viðaukar2Microsoft ExcelSkoða/Opna
Framvirkir samningar-líkan.xls5.77 MBOpinnLágmörkun - viðaukar3Microsoft ExcelSkoða/Opna