Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/12151
Ungir hjúkrunarfræðingar sem tilheyra svokallaðri Y-kynslóð eru einstaklingar sem fæddir eru á árunum 1980 -2000. Þessi kynslóð er ein af þremur kynslóðum hjúkrunarfræðinga sem eru á vinnumarkaði í dag. Hinar tvær eru uppgangskynslóðin (1946-1964), sem er stærsta og fjölmennasta kynslóðin og mun fara á eftirlaun á næstu árum og X-kynslóðin (1965-1979) sem er mun minni kynslóð en hinar tvær. Margt greinir þessar kynslóðir að og hafa þær ólíkar væntingar og viðhorf til starfsins. Rannsóknir hafa sýnt að 30-57% ungra hjúkrunarfræðinga skipta um starf innan tveggja ára frá útskrift og allt að 13% hætta í hjúkrun innan árs frá útskrift. Y-kynslóð hjúkrunarfræðinga er mun fjölmennari kynslóð en sú sem á undan kemur og hennar er þörf á vinnumarkaðinum til að leysa af þá eldri sem fara á eftirlaun. Starfsánægja og ákveðnir þættir í vinnumhverfi þeirra hefur áhrif á líðan þeirra í starfi og ákvörðun um að hætta í starfi. Þessir þættir eru m.a. stuðningur og leiðbeining stjórnenda og starfsfólks, þátttaka í ákvarðanatöku innan stofnunarinnar, jafnvægi á milli vinnu og einkalífs, að hafa áhrif á vinnuskýrslu, fá viðurkenningu, aðgengi að nýjustu tækni, stöðugt vinnuumhverfi, sjálfstæði, vinnuálag og ábyrgð sem þeir ráða við, teymisvinna og að fá verkefni sem fela í sér áskorun og auka faglega færni þeirra.
Lykilorð: ungir hjúkrunarfræðingar, Y-kynslóð, starfsánægja og vinnuumhverfi.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
BSritgerd_starfsan_vinnuumhv_ungra_hjfr.pdf | 286.64 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |