is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Viðskipta- og raunvísindasvið > B.S. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/12191

Titill: 
  • Ráðningar : samanburður á þekkingarfyrirtækjum og hefðbundnum fyrirtækjum
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Í þessu verkefni er fjallað um ráðningarferli fyrirtækja á fræðilegan hátt. Rannsóknarspurning þessa verkefnis sem leitast eftir var að svara er:
    Hver er helsti munurinn á ráðningarferli í hefðbundnum fyrirtækjum og þekkingarfyrirtækum ?
    Ráðningarferli er tímafrekt og kostnaðarsamt ferli sem nauðsynlegt er að huga vel að. Mistök í ráðningum eru dýrkeypt, því er hagur allra fyrirtækja að fjárfesta í skilvirku og árangursríku ráðningarferlinu.
    Ráðningarferlið er skipt upp í þrjú stig, öll stigin eru mismunandi en öll jafn mikilvæg. Fyrst er byrjað að gera starfsgreiningu sem er ítarleg greining á eðli starfsins, því næst er aflað umsækjenda. Til eru ýmsar aðferðir við öflun umsækjenda og mismunandi hvað hentar hverju fyrirtæki og hverju starfi. Á loka stigi ráðningarferilsins er lagt mat á umsækjendurna, mismunandi aðferðir eru notaðar að hverju sinni en í flestum tilfellum eru notaðar tvær eða fleiri.
    Niðurstöður rannsóknarinnar er að þekkingarfyrirtæki nota fleiri aðferðir í öflun umsækjenda og matsaðferðum heldur en hefðbundin fyrirtæki í almenn störf. Ráðningarferli í stjórnenda og sérfræðingastörf hjá hefðbundnum fyrirtækjum eru nokkuð lík ráðningarferlum þekkingarfyrirtækja. Í hefðbundnum fyrirtækjum eru oftar notaðar óformlega aðferðir við öflun umsækjenda heldur en í þekkingarfyrirtækjum. Í þekkingarfyrirtækjum og vegna ráðninga á stjórnenda eða sérfræðinga í hefðbundnum fyrirtækjum koma flestir umsækjendur í fleiri en tvö viðtöl og einnig eru oftar notuð próf í mati á umsækjendunum.
    Hafa ber í huga að ekki er hægt að alhæfa um niðurstöður þessara rannsóknar í ljósi þess að aðeins voru skoðuð 3 þekkingarfyrirtæki og 3 hefðbundin fyrirtæki.
    Lykilorð: Mannauðsstjórnun – starfsgreining - öflun umsækjenda – ráðningar – þekkingarfyrirtæki

Athugasemdir: 
  • Verkefnið er lokað til 1.4.2040.
Samþykkt: 
  • 19.6.2012
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/12191


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Lokaritgerð Íris Hrönn ha060203 23.apríl 2012.pdf1.16 MBLokaður til...01.04.2040HeildartextiPDF