Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/12199
Í þessari ritgerð eru samrunar og yfirtökur skoðaðir með hliðsjón af samruna Íslandsbanka og Byrs í nóvember 2011. Farið er yfir tegundir samruna, mögulegar aðstæður sem geta komið upp, hvað ber að varast og hvernig algengt er að starfólk upplifi samruna. Rauði þráðurinn í gegnum ritgerðina er líðan starfsfólks Byrs á Akureyri á meðan samrunanum stóð. Könnun var gerð á meðal starfsfólks Byrs á Akureyri eftir að samruninn var orðinn opinber og niðurstöður kannaðar með hliðsjón af því sem áður hefur verið ritað um líðan starfsfólks á meðan á samruna stendur. Könnunin leiddi það í ljós að starfsandinn og vellíðan starfsfólks Byrs á Akureyri fór niður á við í samrunanum og að starfsfólkið var ekki ánægt með hvernig staðið var að honum.
Lykilorð: Samruni, yfirtökur, líðan starfsfólks, Byr og Íslandsbanki.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Heimildaskrá.pdf | 13.63 kB | Opinn | Efnisyfirlit | Skoða/Opna | |
Lokaritgerð klár.pdf | 2.65 MB | Lokaður til...01.12.2030 | Heildartexti |