Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/12213
Markmiðið með þessu verkefni var að kanna hvort að það sé grundvöllur fyrir byggingu 64 herbergja, þriggja til fjögurra stjörnu hótels á Siglufirði. Það var gert með að setja upp rekstraráætlun fyrir fimm ár, einnig var gert arðsemismat.
Gerð var SVÓT greining fyrir hótelið sem og markhópagreining í sammvinnu við stjórendur Rauðku ehf. Horft var í fjölda gistinátta á Norðurlandi eystra sem og hótelnýtingu á ársgrundvelli. Aðilar á gistiheimila- og hótelmarkaðnum voru spurðir um nýtingu og reynslutölur. Farið var ítarlega í afþreyingarmöguleika í Fjallabyggð til að hægt yrði að sjá hvort ferðamenn myndu sækjast eftir því að koma til Fjallabyggðar. Farið var yfir sögu Siglufjarðar í mjög stuttu máli og breytingu á staðnum síðustu tvo áratugina.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Ritgerð-Hótel Sunna.pdf | 1.24 MB | Lokaður til...14.05.2100 | Heildartexti | ||
Heimildaskrá.pdf | 30.32 kB | Opinn | Heimildaskrá | Skoða/Opna | |
Efnisyfirlit.pdf | 143.51 kB | Opinn | Efnisyfirlit | Skoða/Opna |