Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/12214
KEA var afar umfangsmikið í atvinnurekstri nær alla tuttugustu öldina. Á ýmsu hefur gengið í rekstri félagsins en alltaf hefur stjórnendum tekist að sigla félaginu í gegnum öldurótið og KEA er í dag þriðja elsta fyrirtæki í samfelldum rekstri á Íslandi.
Undir lok tuttugustu aldarinnar var efnahagsástand á Íslandi erfitt. Háir raunvextir reyndust KEA erfiðir viðfangs á sama tíma og félagið var mjög skuldugt. Þessi staða leiddi til mikilla breytinga á rekstri KEA. Breytingarnar fólust í því að félaginu var skipt upp í hlutafélög – fyrirtækjavæðing KEA hófst.
Lagt var af stað með tvær rannsóknarspurningar: Hver er ímynd KEA í hugum félagsmanna? Hefur þátttaka KEA í samfélagslegum verkefnum áhrif á ímynd félagsins? Svo bættist þriðja spurningin við: Hefur KEA-kortið áhrif á ímynd KEA?
Til að svara þessum spurningum var útbúin spurningakönnun og send á alla sem skráðir voru á netfangalista KEA-kortsins eins og hann var í byrjun apríl 2012. Svör bárust frá 1.114 aðilum. Af þeim voru 74% félagsmenn í KEA og eru niðurstöður skýrslunnar unnar út frá svörum þeirra.
Niðurstöðurnar gefa mjög skýra mynd af ímynd KEA í hugum félagsmanna. Ímyndin verður að teljast góð því 85% félagsmanna telja ímynd KEA vera frekar jákvæða eða jákvæða. Enn afdráttarlausari afstaða kom fram varðandi þátttöku KEA í samfélagslegum verkefnum því rétt tæplega 90% félagsmanna telja hana hafa frekar jákvæð eða jákvæð áhrif á ímyndina.
Í rannsókninni var einnig könnuð afstaða félagsmanna til KEA-kortsins og hvort kortið hefði áhrif á ímynd KEA. Notkun á kortinu er mjög mikil, 83% félagsmanna nota kortið einu sinni í viku eða oftar. Um aðra þætti sem skoðaðir voru má segja að almennt ríki ánægja með kortið og þá umgjörð sem því er búin.
Lykilorð: Ímynd, orðspor, samfélagsleg ábyrgð, KEA-kortið, hagsmunaaðili.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
KEA, ímynd og samfélagsleg ábyrgð lokaútgáfa.pdf | 1.88 MB | Lokaður til...25.05.2050 | Heildartexti |