is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Viðskipta- og raunvísindasvið > B.S. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/12216

Titill: 
  • Vinnustaðamenning lögreglustjórans á Suðurnesjum
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Vinnustaðamenning er flókið fyrirbæri sem erfitt getur verið að skilja. Oft reynist erfitt að útskýra hver vinnustaðamenning skipulagsheilda er og enn erfiðara að bæta hana og breyta.
    Markmið rannsóknarinnar var að mæla vinnustaðamenningu hjá lögreglustjóranum á Suðurnesjum, vegna mikilla breytinga undanfarin ár. Þann 1. janúar 2007 var Lögreglan í Keflavík og á Keflavíkurflugvelli sameinuð og skipt í þrjár deildir, hver með sína starfsstöð og ólík verkefni. Almenn deild á Hringbraut í Keflavík, rannsóknardeild á Brekkustíg í Njarðvík og flugstöðvardeild í Flugstöð Leifs Eiríkssonar.
    Spurningalisti byggður á Denison (DOCS) líkaninu var lagður fyrir lögreglumenn í deildunum þremur og tóku alls 65 af 76 þátt í könnuninni. Svarhlutfall var um 85,5%, tvö svör reyndust ógild og því unnið með 63 eða um 82,9%.
    Helstu niðurstöður rannsóknarinnar eru að starfsmenn telja sig hafa skýra mynd af því hver stefna embættisins er og meðvitaðir um hvað þurfi til að markmiðum þess verði náð. Helst fannst starfsmönnum að samræma þurfi vinnubrögð og viðhorf og skilgreina betur verkferla á milli deilda. Hlutfallsleg niðurstaða starfstöðvanna þriggja var svipuð og starfsánægja samkvæmt könnuninni er góð.

Athugasemdir: 
  • Verkefnið er lokað til 7.7.2030.
Samþykkt: 
  • 19.6.2012
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/12216


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Efnisyfirlit.pdf35.66 kBOpinnEfnisyfirlitPDFSkoða/Opna
Heimildaskrá.pdf164.03 kBOpinnHeimildaskráPDFSkoða/Opna
Vinnustaðamenning Lögreglustjórans á Suðurnesjum.pdf1.37 MBLokaður til...07.07.2030HeildartextiPDF