is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn á Akureyri > Hug- og félagsvísindasvið > B.A./B.Ed. verkefni >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/12245

Titill: 
  • Grænfáninn og umhverfismennt : viðhorf starfsfólks Grænfánaleikskóla
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Þessi ritgerð er lokaverkefni til B.Ed. gráðu við kennaradeild Háskólans á Akureyri. Megintilgangur hennar er að skoða viðhorf starfsfólks leikskóla til Grænfánaverkefnis Landverndar. Í ritgerðinni er gerð grein fyrir helstu hugmyndafræðingum sem fjallað hafa um börn og náttúru. Þrátt fyrir að sumar kenningarnar séu komnar til ára sinna eiga þær vel við í kennslufræðum nútímans. Fjallað er um sjálfbærni, umhverfismennt, útikennslu og Grænfánaverkefnið. Skólar á Íslandi hafa sýnt menntun til sjálfbærni mikinn áhuga og þeir innleiða hana til dæmis með því að taka þátt í verkefnum eins og Grænfánaverkefni Landverndar, auka útikennslu og stofna útiskóla.
    Í seinni hluta ritgerðarinnar er greint frá aðferðafræði rannsóknar sem gerð var um viðhorf starfsfólks leikskóla til Grænfánaverkefnis Landverndar. Fjórir leikskólar tóku þátt í rannsókninni, tveir á Norðurlandi og tveir á Austurlandi. Spurningalisti var unninn á netinu og sendur til þátttakenda. Niðurstöður rannsóknarinnar eru settar myndrænt fram auk þess sem settar eru upp krosstöflur og forvitnilegar niðurstöður bornar saman. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar eru að starfsfólk leikskólanna var almennt mjög ánægt með Grænfánaverkefni Landverndar. Það sem helst var sett út á í sambandi við Grænfánaverkefnið var að það væri ekki nægilega vel kynnt fyrir foreldrum. Einnig töldu sumir þátttakendur að þeir þekktu ekki alla þætti verkefnisins nógu vel.

Samþykkt: 
  • 20.6.2012
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/12245


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Grænfáninn og umhverfismennt.pdf1.16 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna