is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskóli Íslands > Heilbrigðisvísindasvið > B.S. verkefni - Heilbrigðisvísindasvið >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/12253

Titill: 
  • Tölvuleikjaspilun og tíðni tölvuleikjavanda meðal háskólanema
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Markmið rannsóknar var að skima eftir hugsanlegum tölvuleikjavanda meðal íslenskra háskólanema og áhættuþáttum. Rannsóknir á tengslum tölvuleikjavanda og líðan einstaklinga sem glíma við slíkan vanda benda margar hverjar til tengsla tölvuleikjavanda við depurð, kvíða og streitu. Þátttakendur rannsóknar voru 297 nemendur við Háskóla Íslands, 155 karlar og 138 konur. Fjórir þátttakendur tilkynntu ekki kyn sitt. Niðurstöður leiddu í ljós að um 80% háskólanema spila tölvuleiki og er það hlutfall svipað á meðal íslenskra barna og unglinga. Um 8,4% þeirra háskólanema sem spila tölvuleiki teljast með tölvuleikjavanda eða um 6,3% úrtaks. Karlar glíma frekar við tölvuleikjavanda en konur og spila karlar tölvuleiki meira en konur. Niðurstöður benda einnig til að þeir sem eiga í tölvuleikjavanda gengur verr í námi og eru óánægðari með líf sitt en þeir sem spila tölvuleiki vandkvæðalaust eða spila ekki tölvuleiki. Einnig kom í ljós að tölvuleikjavandahópur skoraði hærra á kvörðum er meta depurð og streitu.

Samþykkt: 
  • 22.6.2012
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/12253


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
BS ritgerð Jóhannes Svan Ólafsson.docx1.pdf618.21 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna