Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/12276
Í þessari ritgerð er fjallað um kostanir íþrótta (e. Sports sponsorship) hér á Íslandi. Aukin umfjöllun íþrótta í fjölmiðlum hefur gert það að verkum að fyrirtæki horfa nú hýru auga til íþrótta sem leið til þess að ná athygli fólks.
Ritgerðin skiptist í tvo hluta. Fyrri hlutinn fjallar um markaðssetningu íþrótta, kostun þeirra og hvernig kostunin hefur áhrif á vitund og ímynd vörumerkja. Í seinni hlutanum er greint frá niðurstöðum rannsóknar og tölfræðiprófana. Settar eru fram tvær rannsóknarspurningar tengdar efni fræðilega hlutans og eru spurningarnar eftirfarandi:
Hver er vörumerkjavitund fyrirtækja sem kosta keppnisdeildir íþróttasambanda?
Hver er ímynd fyrirtækja sem kosta keppnisdeildir íþróttasambandanna?
Helstu niðurstöður rannsóknarinnar leiddu í ljós að vitund þátttakenda var almennt mikil á efstu deildum karla og kvenna í knattspyrnu og körfuknattleik. Íþróttirnar hafa notið aukinnar umfjöllunar undanfarin ár og er umgjörð íþróttanna sífellt að vaxa og njóta nú mikilla vinsælda hér á landi. Niðurstöður leiddu jafnframt í ljós að það er ekki jafn mikil vitund á deildarkeppni sérsambandanna, það er að segja bikarkeppni og deildarbikarkeppni þeirra. Meiri óvissa var á meðal þátttakenda þegar spurt var um kostun fyrirtækja á bikarkeppni og deildarbikarkeppni KSÍ og KKÍ. Niðurstöður sýndu einnig að ímynd fyrirtækja sem kosta íþróttir eru almennt jákvæð og viðhorf þátttakenda gott gagnvart fyrirtækjum sem leggja íþróttum lið.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
BSc_ritgerd_GFV.pdf | 1.21 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |