is Íslenska en English

Grein

Háskóli Íslands > Rafræn tímarit > Stjórnmál og stjórnsýsla >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/12286

Titill: 
  • Stýrinet: nýsköpun innan Stjórnarráðsins. Nýtt verklag í samstarfi milli stjórnsýslustiga
Útgáfa: 
  • Júní 2012
Útdráttur: 
  • Í þessari grein er vakin athygli á nýju samskiptaformi sem er að ryðja sér til rúms innan stjórnsýslunnar með tilkomu stefnumörkunarinnar Ísland 2020. Stýri net (e. governance network) er hugtak sem æ fleiri fræðimenn og em bættismenn hafa skoðað síðastliðin tíu ár sem mögulegan valkost við stigveldis stjórnsýslu og útvistaða stjórnsýslu, sem varð vinsæl í lok tíunda áratugarins með tilkomu nýsköpunar í ríkisrekstri (New Public Management). Samstarf þvert á ráðuneyti eru ekki ný af nálinni en með stefnuskjalinu Ísland 2020 eru sett fram verkefni sem krefjast annars konar vinnubragða en tíðkast hafa áður innan stjórnsýslunnar. Ísland 2020 hefur ýtt bæði undir sam hentari
    stjórn sýslu með auknu samstarfi en krefst þess jafnframt að starfs hópar starfi í anda stýrineta svo að sem mestur árangur megi verða af starfi þeirra. Í grein inni er stýrinetskerfi, sem sett var upp innan Stjórnarráðsins og lands - hluta samtaka í tengslum við sóknaráætlanir landshluta, skoðað. Tilraun er
    gerð til að meta hvort stýrinet séu betur til þess fallin en annars konar samstarf til að skila markvissari árangri við lausn verkefna.

Birtist í: 
  • Stjórnmál og stjórnsýsla
Athugasemdir: 
  • Almenn grein
Samþykkt: 
  • 25.6.2012
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/12286


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
b.2012.8.1.1.pdf674.32 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna