is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn í Reykjavík > Samfélagssvið / School of Social Sciences > BSc Viðskiptadeild (og BSc sálfræði -2019) / Department of Business Administration >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/12320

Titill: 
  • Arðbærni og rekstrarumhverfi sjónvarpsstöðva á Íslandi
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Viðfangsefni þessa verkefnis er rekstrarumhverfi sjónvarpsfyrirtækja á Íslandi. Markmið verkefnisins er að fá niðurstöðu í það hvort rekstur sjónvarpsfyrirtækja á Íslandi getur verið arðbær til lengri tíma. Þetta munum við gera með því að greina íslenska sjónvarpsmarkaðinn, helstu þátttakendur á honum og með því að meta það umhverfi sem rekstraraðilar í sjónvarpsreksri starfa á. Einnig verður litið til stærðar markaðssvæðis, reglugerða og efnahagslegra þátta. Að þessu viðbættu verður Fimm krafta líkan Porters notað til greiningar og tölulegur samanburður á rekstri sjónvarpsstöðva gerður. Með því að bera íslenskan rekstur saman við nokkur lönd í Evrópu, fæst enn skýrari mynd af sérstöðu íslensks sjónvarpsreksturs og hvað blasir við þegar leitast er eftir arðbærri starfsemi. Nærtækasta dæmið eru nágrannalöndin, þar sem rekstrarumhverfi er sambærilegt, menning svipuð og sterkar ríkisreknar stöðvar starfa ásamt nokkrum einkareknum stöðvum.
    Helstu niðurstöður eru að sjónvarpsrekstur á Íslandi er ekki arðbær til lengri tíma, þó það liggi fyrir rekstrarlegur grundvöllur. Helstu ástæður eru lítill markaður, takmarkaðir möguleikar til tekjuöflunar, óstöðugleiki í gengismálum, sem hefur gífurleg áhrif á kostnaðarverð seldra vara, og rekstrarform fyrirtækjanna

Samþykkt: 
  • 26.6.2012
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/12320


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Sjónvarpsrekstur á Íslandi.pdf1.75 MBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna