is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn í Reykjavík > Samfélagssvið / School of Social Sciences > BSc Viðskiptadeild (og BSc sálfræði -2019) / Department of Business Administration >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/12321

Titill: 
  • Agile/Scrum: Fræði og framkvæmd kerfisins í hugbúnaðarþróun og innleiðing þess hjá tölvuleikjaframleiðandanum CCP
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Mikilvægi hugbúnaðarþróunar er orðið gríðarlegt í nútíma atvinnulífi. Mörg af fyrirtækjum landsins eru starfrækt í kringum sköpun á hugbúnaði eða tölvuleikjum, ásamt því að stór hluti þeirra nýsköpunarfyrirtækja sem eru að verða til starfa á þeim markaði. Mikilvægi þess að viðskiptafræðimenntað fólk kunni skil á stjórnaraðferðum tengdum þróun hugbúnaðar og þeim aðferðafræðum sem beitt er því mjög mikið og fer sífellt vaxandi. Ein af nýrri hugmyndafræði innan hugbúnaðarþróunar heitir Agile. Innan þeirra hugmyndafræði eru svo margar tegundir af aðferðarfræði sem ætlað er skilgreina hvernig útfæra eigi Agile. Af þeim aðferðum er Scrum langalgengust og hefur leitt til byltingar í því hvernig fyrirtæki skilgreina og vinna með hugbúnaðarþróun.
    Ritgerð þessi leitast við að útskýra fræði og framkvæmd á Agile/Scrum í hugbúnaðarþróun. Farið verður yfir sögu þess og helstu lögmál við rétta notkun þess. Til þess að fá mynd af því hvernig það er svo innleitt var skoðuð saga CCP þegar þeir tóku upp kerfið hjá sér árið 2008 og fylgt eftir hvernig það heppnaðist. Með viðtölum við starfsfólk var svo reynt að greina hver var ávinningurinn af kerfinu hjá CCP og hvað má læra af því hvernig þeir innleiddu Agile/Scrum.

Samþykkt: 
  • 26.6.2012
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/12321


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
Agile Scrum aðferðfræði í hugbúnaðarþróun.pdf1.01 MBOpinnPDFSkoða/Opna