is Íslenska en English

Grein

Háskóli Íslands > Menntavísindasvið > Ráðstefnurit >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/12375

Titill: 
  • „Þetta er minn líkami en ekki þinn“ : sjálfræði og kynverund kvenna með þroskahömlun
Útgáfa: 
  • 2011
Útdráttur: 
  • Í samningi Sameinuðu þjóðanna frá árinu 2007 eru mannréttindi fatlaðs fólks viðurkennd að fullu og þar með talinn réttur þeirra til sjálfstæðrar ákvarðanatöku. Meginmarkmið þessarar rannsóknar var að öðlast skilning á upplifun og túlkun kvenna með þroskahömlun á sjálfræði sínu og kynverund. Sjónum var auk þess beint að þeim menningarbundnu og félagslegu þáttum sem hafa áhrif á og móta reynslu þeirra og upplifun. Rannsóknin er eigindleg og voru tekin einstaklings- og rýnihópaviðtöl við 13 konur á aldrinum 26–46 ára. Helstu niðurstöður voru þær að konurnar upplifðu og þurftu að takast á við ýmsar hindranir er snertir sjálfræði þeirra og ákvarðanatöku í daglegu lífi. Konurnar lýstu því hvernig þær hafa takmarkað aðgengi að fullorðinshlutverkum og oft á tíðum er litið á þær sem eilíf börn, kynlausar verur eða konur með óstjórnlega kynhvöt. Niðurstöðurnar benda til þess að konur með þroskahömlun hafi forsendur til að taka eigin ákvarðanir, en til þess þarf að skapa þeim rými til athafna og veita þeim upplýsingar svo þær geti nýtt sér valkosti í sínum aðstæðum á þann hátt sem þær kjósa. Talsverðar breytingar þurfa að eiga sér stað í málefnum fólks með þroskahömlun, stefnumótun og þjónustu, til þess að uppfylla megi grunngildi í samningí Sameinuðu þjóðanna um þau réttindi fatlaðs fólks sem lúta að sjálfræði og sjálfstæðri ákvarðanatöku.

Birtist í: 
  • Ráðstefnurit Netlu : Menntakvika 2011
Samþykkt: 
  • 27.6.2012
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/12375


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
kristinbjo.pdf321.21 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna