is Íslenska en English

Grein

Háskóli Íslands > Menntavísindasvið > Ráðstefnurit >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/12396

Titill: 
  • Hlutverk skólastjóra í þróunarstarfi eins grunnskóla
Útgáfa: 
  • 2011
Útdráttur: 
  • Þessi grein er byggð á niðurstöðum úr M.Ed.rannsókn höfundar þar sem rannsakað var þróunarstarf í grunnskóla á tíu ára tímbili í sögu hans og hver þáttur skólastjórans var í ferlinu. Stuðst er við hugtakaramma Sergiovanni (2009) sem greining-arlíkan fyrir forystuhlutverk (e. forces of leadership) skólastjórans en hann lýsir skólastjóra sem stjórnanda, starfsmannastjóra, menntafrömuði, sameiningartákni og boðbera menningargilda. Sergiovanni telur að skólastjóri þurfi að hafa alla þessa þætti á valdi sínu til að þróa gott skólastarf. Rannsóknin er eigindleg tilviksrannsókn í grunnskóla. Gögnum var safnað með viðtölum, vettvangsathugunum, spurningakönnun, skjalarýni og óformlegum samtölum. Þátttakendur komu úr röðum starfsfólks skólans, nemenda og foreldra. Niðurstöður bentu til þess að skólastjóri hefði ráðið við öll fimm hlutverkin sem Sergiovanni tilgreinir og að það hefði skipt sköpum fyrir skólaþróunina. Greinin er önnur tveggja greina um rannsóknina. Hin er grein höfundar og Rúnars Sigþórssonar (í prentun) þar sem byggt er á líkani Lambert (2006) um starfshætti skólastjóra við þróun forystuhæfni skóla.

Birtist í: 
  • Ráðstefnurit Netlu : Menntakvika 2011
Samþykkt: 
  • 28.6.2012
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/12396


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
sigrmsig.pdf295.71 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna