is Íslenska en English

Lokaverkefni (Bakkalár)

Háskólinn í Reykjavík > Tæknisvið / School of Technology > BSc Verkfræðideild (áður Tækni- og verkfræðideild) og íþrótta-, iðn- og tæknifræði -2019 / Department of Engineering (was Dep. of Science and Engineering) >

Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/12424

Titill: 
  • Áhrif hreyfingar á offitu
Námsstig: 
  • Bakkalár
Útdráttur: 
  • Ofþyngd og offita hefur aukist gríðarlega síðustu áratugi um allan heim, en á Íslandi glímir um 20% þjóðarinnar við offitu. Samfara þessu hefur hreyfingarleysi aukist mikið og er það einn af stærstu áhrifaþáttum í þróun offitu í heiminum. Í rannsókn frá árinu 2012 kemur í ljós að einungis 34% 18 ára ungmenna á Íslandi hreyfa sig nægilega samkvæmt þeim hreyfiráðleggingum sem gefnar eru út. Mikil bylting hefur verið í heilsuræktargeiranum og hefur fjöldi iðkenda í skipulagðri íþróttastarfsemi aldrei verið meiri. Það virðist sem ekki sé haldið rétt á spöðunum því mikið brottfall verður á iðkendum í skipulagðri íþróttastarfsemi eftir því sem börnin eldast og getur það haft áhrif á þróun hreyfingarleysis. Margir fagaðilar og sérfræðingar eru sammála því að offita er sjúkdómur sem hægt er að koma í veg fyrir með því að efla forvarnarvinnu og byrja á því meðan börnin eru enn ung.

Samþykkt: 
  • 28.6.2012
URI: 
  • http://hdl.handle.net/1946/12424


Skrár
Skráarnafn Stærð AðgangurLýsingSkráartegund 
BS ritgerð AnnaBjörg.pdf668.43 kBOpinnHeildartextiPDFSkoða/Opna