Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/12425
Ritgerð þessi fjallar um Ólympíuverðlaun okkar Íslendinga og áhrif þeirra á samfélagið. Markmið verkefnisins var að sjá hvort áhrifin af verðlaununum leiddu af sér einhverjar breytingar á iðkendatölum, eins voru skoðuð atriði eins og styrkveitingar, sem og kynningarátök íþrótta. Notast var við eigindlega rannsóknaraðferð og tekin viðtöl með hálfopnum eða opnum spurningum við fólk sem tengdist íþróttagreinunum sem hér eru til umfjöllunar. Helstu niðustöður rannsóknarinnar voru þær að iðkendatölur jukust í þrem af fjórum tilvikum ári eftir að unnið hafi verið til Ólympíuverðlauna. Aukningin var þó óveruleg í öllum tilvikum og skar sig ekki út á neinn sérstakan hátt. Sérsambönd íþrótta sem unnu til Ólympíuverðlaunanna settu af stað í öllum tilvikum nema einu kynningarátak þar sem verðlaunahafinn var á einhvern hátt þáttakandi.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Forsíða 2012 - 15.05.12. pdf skjal. ari erlings.pdf | 79.8 kB | Opinn | Forsíða | Skoða/Opna | |
Ari Erlingsson lokaverkefni við HR PDF.pdf | 622.48 kB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |