Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/12429
Í þessari ritgerð verður fjallað um miniton sem er ný nálgun í þjálfun barna í badminton. Það var daninn Morten Bjergen sem þróaði þessa aðferð af því að honum fannst hefðbundin badmintonþjálfun ekki nægilega markviss. Í miniton er aðal áherslan lögð á þátttöku foreldra, tæknilegar æfingar og leiki. Í lok ritgerðar þýði ég æfingar sem kjörnar eru í miniton þjálfun og miða að því að kenna grunntækni eins og grip, fótavinnu í badminton auk fjölbryettar samhæfingar æfingar sem bæta hreyfifærni barna og nýtist þeim í badminton sem og öðrum íþróttum. Einnig fer ég yfir aðal þætti í líkamlegri og andlegri þjálfun fullorðinna og barna. Tilgangur verkefnisins var að búa til aðgengilegt efni á íslensku um miniton. Von mín er sú að þeir sem starfa við þjálfun barna í badminton geti nýtt sér þessa ritgerð við störf sín.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
lokaverkefni bs.pdf | 1.74 MB | Opinn | Heildartexti | Skoða/Opna |