Vinsamlegast notið þetta auðkenni þegar þið vitnið til verksins eða tengið í það: http://hdl.handle.net/1946/1243
Markmið rannsóknar þessarar var að öðlast dýpri skilning á samstarfi skóla og heimila
og finna leiðir til að þróa slíkt samstarf. Til að vinna að því markmiði var ákveðið að
vinna eftir áætlun Joyce L. Epstein, félagsfræðings við John Hopkins University í
Bandaríkjunum, um samstarf skóla, fjölskyldna og samfélags. Með rannsókninni var
leitað svara við því hversu vel hugmyndafræði Epstein hentar íslenskum grunnskóla
og hvernig mætti laga áætlun Epstein um slíkt samstarf að íslenskum veruleika.
Rannsóknin var starfendarannsókn og fór fram í Oddeyrarskóla á Akureyri með
þátttöku kennara og stjórnenda skólans sem fylgdu áætlun um samstarf og unnu að
forgangsverkefnum í samstarfi sínu við fjölskyldur. Tekin voru tólf viðtöl við
kennara, foreldra og nemendur á rannsóknartímanum, auk þess sem lokamat var lagt
fyrir alla foreldra nemenda skólans og kennara. Rannsóknin stóð skólaárin 2002–
2003 og 2003–2004.
Megin niðurstöður rannsóknarinnar voru athyglisverðar. Samstarfsáætlun Epstein
reyndist Oddeyrarskóla góð leið til að þróa og bæta samstarf skólans við
fjölskyldur. Samstarfsáætlunin og það vinnulag sem lagt er til gafst vel. Bæði
kennarar og foreldrar lýstu ánægju með samstarfið, skipulag þess og þann árangur
sem náðist með þróunarverkefninu. Forgangsverkefni samstarfsins sem unnin voru
seinna ár þróunarverkefnisins voru árangursrík að mati foreldra og kennara.
Mikilvægasta niðurstaða þessa þróunarverkefnis var árangur sá er hlaust af átakinu
þegar umsjónarkennarar sóttu fjölskyldur heim. Lokamat þróunarverkefnisins sýndi
að það hafði jákvæð áhrif á störf flestra umsjónarkennara.
Skráarnafn | Stærð | Aðgangur | Lýsing | Skráartegund | |
---|---|---|---|---|---|
Ingibjörg Auðunsdóttir_e.pdf | 117 kB | Opinn | Árangursríkt - efnisyfirlit | Skoða/Opna | |
Ingibjörg Auðunsdóttir_fylgiskjöl.pdf | 351.16 kB | Opinn | Árangursríkt - fylgiskjöl | Skoða/Opna | |
Ingibjörg Auðunsdóttir_h.pdf | 133.11 kB | Opinn | Árangursríkt - heimildaskrá | Skoða/Opna | |
Ingibjörg Auðunsdóttir_heild.pdf | 637.7 kB | Opinn | Árangursríkt - heild | Skoða/Opna | |
Ingibjörg Auðunsdóttir_u.pdf | 85.98 kB | Opinn | Árangursríkt - útdráttur | Skoða/Opna |